Vikan framundan

Hefðbundin vika framundan með þeirri undantekningu að æfing á mánudegi fellur niður vegna veðurs eins og líklega flestir hafa gert ráð fyrir.

Minnum annars á góðan fatnað og hlýjan.

Foreldraráðið er að skipuleggja smá jólahitting hjá stelpunum og segjum við nánar frá því á næstu dögum, svona eftir að allir hafa skriðið úr hýði eftir storminn 🙂

Kveðja

Foreldraráð

Engir leikir um helgina

Engir leikir um helgina þar sem snjór liggur yfir vellinum.

Því hefðbundin æfing á morgun en bendum á að veðurspáin er á þá leið að það verður einhver vindur og mögulega skafrenningur. Húfur, vettlingar og jafnvel síðar nærjur svo allir haldi góðum hita á sér.

Kveðja

Foreldraráð